Boltastelpur

Boltastelpur

03.02.2010 19:33:11 / boltastelpur

KFF/Leiknir vs. Sindri

Æfingaleikur á laugardaginn kl. 12 við Sindra! 
Allar að mæta, við ætlum að vinna Sindra aftur stelpur mínar!! 8)
Það er mæting kl. 11.

Sjáumst hressar gellur ;) 

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.02.2010 19:11:36 / boltastelpur

Æfing smæfing

Æfing á laugardag kl 12:00!-hvað segið þið um það??

Samkvæmt mínum kokkabókum er æfing á morgun 17:45.

Kveðja Ranna panna.


» 8 hafa sagt sína skoðun

28.01.2010 22:41:24 / boltastelpur

Breyting á breytingu!

Jæja, æfingin á laugardaginn verður á sínum venjulega tíma klukkan 1100 - en ekki klukkan hálf1 eins og var sagt í blogginu hér á undan! 

sjáumst.. kv svanhvít 

» 6 hafa sagt sína skoðun

27.01.2010 13:19:38 / boltastelpur

..

Það verður ekki æfing í dag, miðvikudag.. 


Í staðinn er æfing á morgun - fimmtudag klukkan 17:30! 
hittumst kl 5 á fásk ;) 

Svo færist æfingin á laugardaginn til 12:30, ég veit ekki afhverju en það kemur bara í ljós á morgun. 

kommentiði stelpur hvort þið komið eða ekki!
kv Svanhvít

» 10 hafa sagt sína skoðun

19.01.2010 16:46:00 / boltastelpur

æfing á miðvikudaginn

.... fellur niður vegna úrtaksæfingu hjá 3 flokk... svo næsta æfing verður á laugardaginn :D

allar hreifa sig eitthvað í staðin fyrir æfingu...

» 7 hafa sagt sína skoðun

16.01.2010 13:39:48 / boltastelpur

SIGUR!!!!

Já það var sigur á Sindrastelpum 3-2!!

Við stóðum okkur með prýði og komumst svo sannarlega í gang eftir 45 mínútna leik og núna þýðir ekkert annað en að vera duglegar að lyfta og hlaupa til að styrkja okkur betur líkamlega!, við þurfum líka að muna að það er ekkert sjálfgefið að komast í hópinn því að við erum komnar með þéttan og góðan hóp og verðum við að vera alltaf á tánum og keppa við hinar og ekki síst okkur sjálfar! Það þýðir líka ekki að mæta bara á æfingu fyrir leik eða bara í leik og ætlast til þess að komast í liðið!- nema að þið séuð löglega afsakaðar 8)

Næsta æfing er á laugardaginn eftir viku kl 11:00, engin æfing er á miðvikudaginn-muna að hlaupa sjálfar!

Kveðja the golie!, aka Björgvin markmaður, aka Rannveig:haha:

 

 




» 10 hafa sagt sína skoðun

15.01.2010 15:51:22 / boltastelpur

leikur

það er leikur á morgun kl 11:00 í höllinni á rey við sindra!! 

mæting 10:00!! í höllinni....

sjáumst svaka hressar


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.01.2010 22:20:39 / boltastelpur

æfing á morgun

æfingin á morgun er á sama tíma og alltaf... 

æfingaleikur líklega á laugardaginn við Sindra..



» 6 hafa sagt sína skoðun

08.01.2010 00:10:12 / boltastelpur

:D

æfing á laugardaginn á sama tíma og alltaf.. =) 

ooog það nýjasta er það að það er æfingaleikur við Sindra í höllinni 16. janúar.. svo allar að vera drullu duglegar að mæta!! 

leiter :D 
Ásta K

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.01.2010 21:04:33 / boltastelpur

Týndur sími

Hey gleymdi einhver af ykkur bleikum samsung síma í höllinni í dag? 
ef svo er látið mig þá vita.. af því að hann er hér á fásk og ég get fengið hann ef einhver af ykkur á hann ;) 

kv svanhvít
8458881

» 5 hafa sagt sína skoðun

31.12.2009 13:45:24 / boltastelpur

..

Jæja stelpur! næsta æfing verður semsagt 2. janúar (á laugardaginn) kl. 11... þannig að nú fara æfingarnar að vera aftur eftir rútínu, semsagt á laugardögum kl 11 og á miðvikudögum kl 17:45 :)

annars langaði mig bara að segja gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla :) 
- kv svanhvít

..já og allir að kommenta hvort þær komast eða ekki ;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.12.2009 15:56:53 / boltastelpur

minna á æfingu

bara að minna allar á æfingu á eftir kl 17:45 á rey.... 
það verður ekki þjálfari en við gerum bara gott úr því og gerum eitthvað skemmtilegt sjálfar... =) 

mæting 17:15 við ítr- hús á fásk

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2009 13:01:17 / boltastelpur

æfingar

þar sem 9 eru búnar að boða sig á æfingu núna í dag og á morgun þá verður æfing á eftir í höllinni kl 15:30 og á morgun (á þeim tíma sem stendur fyrir neðan).... sjáumst hressar og kátar.. :D 

endilega samt að draga sem flestar með svo við verðum fleiri =)

Ásta K

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.12.2009 15:41:57 / boltastelpur

æfingar milli hátíða

það er komið í ljós hvaða tímar eru lausir á milli hátíða og það er á mán kl 15:30 - 17:00 og á þri kl 17:45 - 19:00

hentar þessi tími ykkur... hverjar geta mætt???

Ásta K

» 11 hafa sagt sína skoðun

22.12.2009 19:55:03 / boltastelpur

28. desember

næsta æfing verður 28. des í höllinni... hvaða tími myndi vera góður fyrir ykkur?? þeas kl hvað 28.des.... ef enginn er í vinnu þá væri fínt að hafa hana rétt eftir hádegi en ef margir eru í vinnu þá hafa hana seinni partinn... 

en kommentið um tíma sem er góður og hvort þið mætið eða ekki :) 

leiter - Ásta K

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  24  Alls: 48947
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan